Búvörulög

Það er ótrúlegt hvað umræðan er á villigötum. í búvörulögum sem og samnigi um framkvæmd mjólkursframleiðslu er ákvæði um að bændur framleiði sem næst innanlandsneyslu. Þar af leiðandi er ákveðið hámark sem má framleiða á þann markað, sem er stýrt með svokölluðum framleiðslurétti, sem hver og einn bóndi hefur aflað sér eða keypt af öðrum, sem þá hafa afsalað sér þeim rétti. Tveir af þeim þrem sem ætla að stofna Vesturmjólk hafa einmitt selt öðrum þennan rétt, sem þeir gerðu þegar þeir fóru að legja inn hjá Mjólku. Þau viðskipti stóðu ekki lengi vegna óhagkvæmni í mjólkurflutningum, sem var orðin 3 til 4 sinnum dýrari en hjá MS, og Mjólka sagði þeim samningum upp og bændurnir sátu uppi með sárt ennið og kvótalausir, því Mjólka fór að kaupa svo kallaða hrámjólk hjá MS sem 7 manna nefnd verðleggur og MS er skylt að selja hverjum sem vill framleiða mjólkurvörum, er eins þannig í dag. mjólka fór á hausinn í júní 2009 og skipti um kennitölu og pantaði mjólk á nýju kennitöluna  og MS varð að afgreiða hana þrátt fyrir 50-60 millj skuld gömlu kennitölunnar sem varða svo að afskrifa. Í november sama ár er Mjólka aftur að fara í þrot þegar KS  er nánast fengið til að yfirtaka hana. Í búvörulögum er ákvæði um að öll mjólk umfram kvóta skuli fara á erlendan markað á ábyrgð bænda og afurðastöðva, en það eru engin úrræði til að fylgja þessu eftir. Það eru eingöngu sektar ákvæði í þessu frumvarpi til að fylgja eftir gildandi  lögum. Það er bannað eð keyra hraðar en 90.  Ef það væru engin sektarákvæði við að keyra hraðar mundu allir keyra hraðar. Svo væri gott að fólk mundi kynna sér þróun á mjólkurverði til bænda og til neyrenda miðað við aðrar vörur og vísitölur  síðastliðin 15 ár frá því að farið var að hagræða í iðnaðinum með sameiningu afurðastöðva og leggja niður vinslubú og sérhæfa úrvinsluna. Íslenski markaðurinn er svo lítill og gæða og heilbrigðiskröfum svo strangar að hann þolir ekki smærri einingar.

Kveðja Haraldur Magnússon 


Illa farið með fjármuni

Ég hef ekki nokkra trú á að þessi kostnaðaráætlun standist ca 2030 m2 á 320þús á fermeter, nær væri að tala um 400 þús ferm eða ca 812millj + frammúrkeyrsla eins og venjan er . Mentaskólinn í Borgarnesi kostaði á milli 330-350 þús fermeter og er hann 3000 m2, síðan hefur allt efni hækka mikið, til dæmis sement um 70-90%. Þetta er  fjármálaleg óráðsía af sveitastjórn þar sem hægt var að fara aðra lei með nýtingu á eldri byggingu og viðbyggingu við hana. Fyrir utan það að þá er ekki til nægjanlegt heitt vatn í borholunni sem skólinn á forgang  að fyrir þessa byggingu, því verður að taka það af eldri skólabyggingu og raðhúsunum og kynda þau með rafmagni eða leggja í tug ef ekki 100milljóna , lögn frá HAB  og kynda þannig
mbl.is Raðhús, námur eða félagsheimili upp í skólabyggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Íslendingar

Nú er orðin ástæða til að lesa ritstjórnargreinina, sem verður trúlega vel krifjuð

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband